Við kærðum nágranna okkar

Það var í vor sem við vorum að að spjalla við nágranna okkar, við ræddum um garðslátt. Heiðar fór að segja þeim hvað honum þætti einstaklega leiðinlegt að slá blettinn. Svo fréttum við eftir eina af okkar fyrstu útilegum í vor að þau hafi mætt eftir að við vorum farinn og borið vel af áburði á blettinn okkar svo hann yxi nú vel í sumar.

 Þar sem það logar allt í kærum í hverfinu okkar þá ákváðum við að kæra þau fyrir þetta bjánalega tiltæki þeirra. Þið getið lesið kæruna hér fyrir neðan og eins og þið getið rétt ímyndað ykkur þá tölumst við ekki við þessa daganaDevil

 Kæra 07.07.07Ragnar Heiðar Karlsson og María Maronsdóttir ábúendur að Bjálfhólum 20 hafa lagt fram kæru á hendur íbúum að Bjálfhólum 9  Jósefi Antoni Skúlasyni og Dagrúnu Ingvarsdóttur  fyrir að hafa með ólögmætum hætti borið áburð á grasflöt eignar Ragnars og Maríu með þeim afleiðingum að grasflöturinn hefur sprottið 50% meira heldur en eðlilegt er. Garðyrkjufræðingurinn Arfi Þór Jónsson var fengin til þess að meta skaðann sem Ragnar og María hafa orðið fyrir og telur hann að bensínkostnaður við rekstur sláttuvélar þeirra hafi aukist um 50 % eða sem nemur 13.000 k.r og aukið álag á Ragnari vegna þess að hann hefur þurft að slá garðinn helmingi oftar heldur en ella ef Jósef hefði ekki verið með þennan kjánaskap að bera á blettinn hjá Ragnari og Maríu. Arfi telur að þetta álag jafnist á við 10.000 k.r.  Ragnar Heiðar Karlsson og María Maronsdóttir fara því frá á skaðabótakröfu að andviðri 23.000 k.r.  Kæran verður feld niður ef Jósef og Dagrún greiða skaðabótakröfuna til Ragnars og Maríu innan 7 daga. Meðfylgjandi er reiknisnúmer þeirra sem þið getið lagt inn á.Fyrir hönd Ragnars Heiðars Karlssonar og Maríu Maronsdóttur, Svanur Jónsson Hæstaréttarlögmaður.

Reiknisnúmer 325-26- 89738  Kt:1301764889

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halló er fólk orðið einum of barnalegt nú til dags...

Atlireimars (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 21:53

2 Smámynd: Maja

Halló þolir fólk ekki smá húmor nú til dags...

Maja, 23.7.2007 kl. 22:03

3 identicon

Þið hafið væntanlega orðið alveg arfavitlaus..
Vonandi þurfið þið ekki að ganga með grasið í skónum á eftir nágrönnunum til að fá aurana, peningar vaxa jú ekki á trjánum.

Maja Solla (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 22:22

4 identicon

hahahahahaha nú kafna ég úr hlátri

Þórey (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Maja
Maja

Nýjustu myndböndin

Alveg að sofna

Baka Baka spínat

nóv 016

Enginn titill

des 063

ingo 010

Enginn titill

Enginn titill

123 076

Maron að ræða um fótbolta

234 dagar til jóla

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Maju

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband