Færsluflokkur: Bloggar
4.8.2007 | 00:36
Hjónaband
Nú til dags eru 80% kvenna á móti hjónaböndum.
Hvers vegna?
Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það er óþarfi að kaupa heilt svín bara til þess að fá eina pulsu....................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.8.2007 | 20:55
Ég verð nú bara að segja það að ég held ég sé bara mjög sátt mig eins og ég lít út, miðað við myndirnar hér fyrir neðan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.8.2007 | 22:59
Halló Halló skrifið í gestabókina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2007 | 22:54
Fjölskylduhátíðin Galtafell 2007
Nú snýst allt um það hvernig veðrið verðum um verslunarmannahelgina. Það lítur allt út fyrir að við leggjum ekkert að stað fyrr en á laugardaginn vegna þess að spáð er miklu hvassviðri og ég hata rok. En allavega stefnan er tekin á útihátíðina "Galtafell 2007" sem verður haldin í fyrsta skipti í ár. Þar verður Áfengi á algerum bannlista. En til þess að reglum verði framfylgt þá verðum ég og Dúna Mák. í hliðinu og leitum í bílunum og ef einhver áfengislöggur finnst á fólki þá verður hann tekin um leið og geymdur í birgðarstöð gæslumanna, Gæslumennirnir tveir hafa svo ákveðið að gera rannsókn á laugardagskveldinu á því hvað meðlimir hátíðarinnar hafi reynt á smygla inn á svæðið og munum við því skola þessu niður í gæsluhúsinu og punkta svo niður áfengistegundirnar. En því miður fyrir þá sem hafa hug á því á mætta á þessa hátíð, þá er það ekki í boði af því einungis þeir sem hafa fengið boð frá gæslumönnum geta mætt á hátíðina.
Fréttir af hátíðinni verða birtar eftir helgina
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.7.2007 | 21:26
Jæja þá byrja prakkarastrikin
Hann Maron gerði sitt fyrsta alvöru prakkarastrik í dag ásamt vinkonu sinni úfff.
Þau laumuðust inn í bílskúr hjá henni og náðu sér í spreibrúsa sem var þar, tilgangurinn hjá þeim var að fara að spreja á kóngulær, sem virtust flestar vera á húsinu hjá henni.
En allavega þá sjáið þið á myndinni smá sýnishorn af því hvernig húsið lítur út.
Maron var semsagt settur í náttföt kl 6 og er þar inni og skammast sín mjög mikið. Og verður þar í sínu fyrsta straffi í kvöld. Ég sem hélt að sonur minn væri allger engill.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2007 | 21:35
Við kærðum nágranna okkar
Það var í vor sem við vorum að að spjalla við nágranna okkar, við ræddum um garðslátt. Heiðar fór að segja þeim hvað honum þætti einstaklega leiðinlegt að slá blettinn. Svo fréttum við eftir eina af okkar fyrstu útilegum í vor að þau hafi mætt eftir að við vorum farinn og borið vel af áburði á blettinn okkar svo hann yxi nú vel í sumar.
Þar sem það logar allt í kærum í hverfinu okkar þá ákváðum við að kæra þau fyrir þetta bjánalega tiltæki þeirra. Þið getið lesið kæruna hér fyrir neðan og eins og þið getið rétt ímyndað ykkur þá tölumst við ekki við þessa dagana
Kæra 07.07.07Ragnar Heiðar Karlsson og María Maronsdóttir ábúendur að Bjálfhólum 20 hafa lagt fram kæru á hendur íbúum að Bjálfhólum 9 Jósefi Antoni Skúlasyni og Dagrúnu Ingvarsdóttur fyrir að hafa með ólögmætum hætti borið áburð á grasflöt eignar Ragnars og Maríu með þeim afleiðingum að grasflöturinn hefur sprottið 50% meira heldur en eðlilegt er. Garðyrkjufræðingurinn Arfi Þór Jónsson var fengin til þess að meta skaðann sem Ragnar og María hafa orðið fyrir og telur hann að bensínkostnaður við rekstur sláttuvélar þeirra hafi aukist um 50 % eða sem nemur 13.000 k.r og aukið álag á Ragnari vegna þess að hann hefur þurft að slá garðinn helmingi oftar heldur en ella ef Jósef hefði ekki verið með þennan kjánaskap að bera á blettinn hjá Ragnari og Maríu. Arfi telur að þetta álag jafnist á við 10.000 k.r. Ragnar Heiðar Karlsson og María Maronsdóttir fara því frá á skaðabótakröfu að andviðri 23.000 k.r. Kæran verður feld niður ef Jósef og Dagrún greiða skaðabótakröfuna til Ragnars og Maríu innan 7 daga. Meðfylgjandi er reiknisnúmer þeirra sem þið getið lagt inn á.Fyrir hönd Ragnars Heiðars Karlssonar og Maríu Maronsdóttur, Svanur Jónsson Hæstaréttarlögmaður.Reiknisnúmer 325-26- 89738 Kt:1301764889
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.7.2007 | 20:45
Konur eru fyrirmyndar bifhjólaökumenn
Vá hvað þær eru heppnar að áhugi minn á mótorhjólum skuli hafa dofnað fyrir 12 árum eða 3 mánuðum eftir að ég tók móturhjólaprófið. Ef ég hefði haldið áfram að keyra mótorhjól þá hefðu þær sennilega ekki þennan titil. Ekki það að ég hafi keyrt of hratt heldur meira of hægt og verið óvart að svína fyrir aðra ökumenn. En þetta er allt í lagi ég er ekkert á leiðinni að fara að kaupa mótorhjól
Konur eru fyrirmyndar bifhjólaökumenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2007 | 20:15
Jæja þá er komið að því nú á að fara að tjá sig opinberlega
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
336 dagar til jóla
Bloggvinir
Maju
-
Myndablogg
Myndablogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar