24.7.2007 | 21:26
Jæja þá byrja prakkarastrikin
Hann Maron gerði sitt fyrsta alvöru prakkarastrik í dag ásamt vinkonu sinni úfff.
Þau laumuðust inn í bílskúr hjá henni og náðu sér í spreibrúsa sem var þar, tilgangurinn hjá þeim var að fara að spreja á kóngulær, sem virtust flestar vera á húsinu hjá henni.
En allavega þá sjáið þið á myndinni smá sýnishorn af því hvernig húsið lítur út.
Maron var semsagt settur í náttföt kl 6 og er þar inni og skammast sín mjög mikið. Og verður þar í sínu fyrsta straffi í kvöld. Ég sem hélt að sonur minn væri allger engill.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2007 | 21:35
Við kærðum nágranna okkar
Það var í vor sem við vorum að að spjalla við nágranna okkar, við ræddum um garðslátt. Heiðar fór að segja þeim hvað honum þætti einstaklega leiðinlegt að slá blettinn. Svo fréttum við eftir eina af okkar fyrstu útilegum í vor að þau hafi mætt eftir að við vorum farinn og borið vel af áburði á blettinn okkar svo hann yxi nú vel í sumar.
Þar sem það logar allt í kærum í hverfinu okkar þá ákváðum við að kæra þau fyrir þetta bjánalega tiltæki þeirra. Þið getið lesið kæruna hér fyrir neðan og eins og þið getið rétt ímyndað ykkur þá tölumst við ekki við þessa dagana
Reiknisnúmer 325-26- 89738 Kt:1301764889
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.7.2007 | 20:45
Konur eru fyrirmyndar bifhjólaökumenn
Vá hvað þær eru heppnar að áhugi minn á mótorhjólum skuli hafa dofnað fyrir 12 árum eða 3 mánuðum eftir að ég tók móturhjólaprófið. Ef ég hefði haldið áfram að keyra mótorhjól þá hefðu þær sennilega ekki þennan titil. Ekki það að ég hafi keyrt of hratt heldur meira of hægt og verið óvart að svína fyrir aðra ökumenn. En þetta er allt í lagi ég er ekkert á leiðinni að fara að kaupa mótorhjól
![]() |
Konur eru fyrirmyndar bifhjólaökumenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2007 | 20:15
Jæja þá er komið að því nú á að fara að tjá sig opinberlega

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
242 dagar til jóla
Bloggvinir
Maju
-
Myndablogg
Myndablogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 441
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar